Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík og fyrrverandi borgarstjóri, útilokar samstarf með Samfylkingunni í borginni. Það sé þegar fullreynt. Hann sagði í hlaðvarpinu Lyklavöldin að Framsókn hefði ekki sprengt meirihlutann með Samfylkingunni í fyrra til að „hoppa upp í fangið til þeirra eftir þessar kosningar“, líkt og hann orðaði það í þættinum. Einar staðfesti við fréttastofu að hann útiloki alfarið samstarf með Samfylkingunni. Hann telur ólíklegt að flokkarnir nái saman um breytingar sem gera þurfi í mörgum mikilvægum málaflokkum. „Það er fullreynt. Sama fólk er á lista og hafnaði tillögum okkar að breytingum,“ segir Einar. „Nýkjörinn oddviti Samfylkingarinnar hefur ekkert sagt annað en að hann ætli að halda áfram með sömu stefnu.“ Einar kveðst opinn fyrir samstarfi með Viðreisn, Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum en segir eðlilegt að þeir flokkar skýri hvort þeir séu reiðubúnir að vinna með Samfylkingunni eða ekki.