„Daglegt líf hélt einhvern veginn áfram“

Íslensk hjón sem voru í fríi í Sádí-Arabíu upplifðu sig ekki í mikilli hættu þegar átök brutust út í Mið-Austurlöndum í síðustu viku. Þau fengu flug til Vínarborgar með aðstoð borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins og vænta þess að komast heim til sín í næstu viku. Fegin að vera ekki í Doha Hjónin Úlfur Bragi Einarsson og Katrín Björg Gunnarsdóttir voru stödd í Ríad í Sádí-Arabíu þegar átökin brutust út í Mið-Austurlöndum í síðustu viku. Þau eru búsett í Tókýó í Japan og höfðu ákveðið að fara til Sádí-Arabíu til þess að heimsækja foreldra Úlfs sem eru búsettir þar. „Við vorum þarna í Ríad. Svo byrja að berast fréttir af þessari innrás í Íran og þá byrja bara að falla niður flug og það er verið að aflýsa flugum. Í Ríad urðum ekki vör við neitt nema bara það eiginlega,“ segir Úlfur. „Þannig að daglegt líf í Ríad hélt einhvern veginn bara áfram, það virtist enginn vera að kippa sér neitt mikið upp við þetta. En við sáum auðvitað myndskeið og fréttir frá Doha og Dubai þar sem við höfum líka verið og pabbi minn hefur áður búið í Doha þannig að við vorum glöð að vera ekki þar núna. Það var töluvert verra þar.“ Upplifðu sig ekki í hættu Að sögn Úlfs upplifðu hjónin sig ekki í hættu í Ríad þegar fréttir tóku að berast um innrás Írana og raskanir á flugsamgöngum. „Við upplifðum það ekki þannig að það væri eitthvað að óttast í rauninni. Jú, auðvitað var óþægilegt að vita af því að það hefðu farið þarna einhverjir drónar eða rakettur á alþjóðaflugvöllinn. Og svo fréttirnar með bandaríska sendiráðið í Ríad. En nei, við urðum ekkert beint hrædd.“ Eftir að leit að flugi út úr Ríad hafði ekki borið árangur höfðu hjónin samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Í gegnum borgaraþjónustuna fengu þau flug til Vínarborgar. Þaðan fóru þau til vina sinna í Berlín þar sem þau dvelja áður en þau halda heim til Japan í næstu viku. Ferðin til Berlínar gekk þó ekki áfallalaust. „Við flugum seinnipartinn frá Ríad og lentum um kvöldið í Vínarborg. Gistum þar á hóteli á flugvellinum og fórum svo í lest til Berlínar sem að síðan auðvitað bilaði í Tékklandi. Við vorum föst þar í tvo tíma og alls konar gekk á. Það þurfti að koma að sækja okkur til Dresden af því að lestin komst ekki lengra. Þetta var ævintýri,“ segir Úlfur léttur í bragði. „Lífið heldur bara áfram í Sádí“ Úlfur kveðst þakklátur fyrir aðstoð borgaraþjónustunnar sem staðið hefur í ströngu við að aðstoða Íslendinga í kjölfar átakanna á svæðinu. Þrátt fyrir að vera búsett í Japan séu því takmörk sett hvað stjórnvöld þar í landi geti gert til að aðstoða erlenda ríkisborgara í aðstæðum sem þessum. „Það sem gerist náttúrulega er að við erum bara íslenskir ríkisborgarar enn þá þannig að við getum ekki sótt neina þjónustu til Japan beint. Þannig að við erum auðvitað mjög þakklát fyrir það sem var hægt að gera fyrir okkur.“ Foreldrar Úlfs hafa verið búsettir í Mið-Austurlöndum um árabil og er pabbi hans í vinnu þar. Hann segir lífið ganga sinn vanagang á heimili foreldra sinna þrátt fyrir vendingar síðustu viku. „Pabbi er í fullu starfi í Sádí-Arabíu. Hann er auðvitað bara í vinnu og það er ekkert svona í gangi þannig. Hann ætlar ekki að koma heim. Mamma býr hjá honum hluta úr ári. Hún á flug sem hún pantaði sjálf sem á að fara í kvöld og er á dagskrá enn þá. En einmitt, pabbi verður bara áfram, er í vinnunni. Lífið heldur bara áfram í Sádí.“