Bikarkeppni frjálsþróttasambands Íslands lauk í Kaplakrika í dag og þar stóð FH uppi sem öruggur bikarmeistari, einni viku eftir að FH-ingar unnu annan eins tvöfaldan sigur á meistaramótinu í Laugardalshöll. FH sigraði í karlaflokki með 72 stig, í kvennaflokki með 73 stig og vann samanlagðan heildarsigur með 155 stigum. Í karlaflokki var ÍR í öðru sæti með 60 stig og Ármann þriðja með 47 stig. Í kvennaflokki varð ÍR aftur í öðru sæti með 61 stig, en Fjölnir og HSK deildu þriðja sætinu með 52 stig hvort félag. Í heildarkeppninni fylgdi ÍR fast á eftir með 130 stig og HSK varð þriðja með 102 stig. Christina Alba rísandi stjarna í 60 metrum Engin met féllu á mótinu en mikil spenna var í 60 m hlaupi kvenna þar sem hin unga Christina Alba Marcus Hafliðadóttir úr Fjölni kom fyrst í mark á nýju aldursflokkameti 18-19 ára, 7,56 sekúndum. Hún varð þremur sekúndubrotum á undan ÍR-ingnum Eir Chang Hlésdóttur sem varð önnur. Fyrr á árinu náði Alba næstbesta tíma sögunnar í greininni hérlendis. Hún sigraði einnig í greininni á meistaramótinu um síðustu helgi. Kolbeinn Höður sneri aftur Í karlaflokki var Íslandsmethafinn Kolbeinn Höður Gunnarsson úr FH mættur til leiks en hann hefur verið að glíma við meiðsli og ekki keppt lengi. Hann sigraði naumlega í 60 metra hlaupi á 7,02 sekúndum, einum hundraðasta úr sekúndu á undan næsta manni, Arnari Loga Brynjarssyni úr ÍR. Aðeins æft hlaup í tvö ár Mikil spenna var í 400 metra hlaupi karla þar sem Leó Örn Þórarinsson úr FH hafði sigur á persónulegu meti; 49,50 sekúndum en hann hefur aðeins æft hlaup í tvö ár. Ólympíufarinn Erna Sóley Gunnarsdóttir úr ÍR bar sigur úr býtum í kúluvarpinu þrátt fyrir að hafa verið töluvert frá sínu besta. Hún kastaði 16,80 metra í dag. Birna Kristin Kristjánsdóttir úr FH sigraði örugglega í langstökki kvenna, með 6,16 metra stökki, og í hástökki kvenna sigraði liðsfélagi hennar úr FH, Helga Þóra Sigurjónsdóttir með stökk upp á 1,71 metra. Í stangarstökki kvenna sigraði Fjölniskonan Hanna María Petersdóttir með 3,40 metra stökki en Ísold Sævarsdóttir var skammt á eftir með stóra bætingu, 3,20 metra. Í 60 m grindahlaupi kvenna sigraði María Rún Gunnlaugsdóttir úr ÍR á 8,63 sekúndum, 11 sekúndubrotum á undan FH-ingnum Ísold Sævarsdóttur sem varð önnur. Í 60 metra grindahlaupi karla varð spennandi einvígi þar sem ÍR-ingurinn Ívar Kristinn Jasonarson tók sigurinn á 8,57 sek, 6 sekúndubrotum á undan Ívari Yli Birkissyni. Spenna í langstökkinu Í langstökki karla var mjótt á munum þegar Gylfi Ingvi Gylfason úr FH sigraði með 6,78 metra stökki en Tobías Þórarinn Matharel var rétt á eftir með 6,76 m. Í 1500 m karla sigraði FH-ingurinn Fjölnir Brynjarsson og í 1500 metra hlaupi kvenna var FH með yfirburði þegar Íris Dóra Snorradóttir (FH A) kom fyrst í mark, skammt á undan Írisi Önnu Skúladóttur (FH B), báðar á rúmum 4:42 mín. Í þrístökki kvenna sigraði Irma Gunnarsdóttir úr FH með flott stökk upp á 13,10 metra og Anna Metta Óskarsdóttir úr HSK náði þriðja sæti með 11,39 m. Í þrístökki karla sigraði Guðjón Dunbar Diaquoi úr Fjölni. Árekstur í 400 metra hlaupi Mikil spenna var í 400 metra hlaupi karla þar sem Leó Örn Þórarinsson tók sigurinn á persónulegri bætingu, 49,50 sekúndum. Óhapp varð á leið inn í þriðju beygju þegar Ívar Kristinn Jasonarson og Kjartan Óli Bjarnason rákust saman, sem hafði áhrif á framvinduna í hlaupinu, og það gat Leó Örn nýtt sér. Í 400 m kvenna sigraði Ísold Sævarsdóttir á 55,58 sek, og Eyrún Svala Gústavsdóttir varð önnur á 56,88 sek. Í hástökki karla sigraði Gunnar Eyjólfsson með því að jafna sinn besta árangur. Helgi Reynisson varð annar. Þótt stigastaðan hafi verið nokkuð ljós fyrir boðhlaupin var alls ekki slakað á í lok dags. Í 4x200 m boðhlaupi kvenna sigraði ÍR mjög örugglega, Fjölnir varð í öðru sæti og FH í því þriðja. Í 4x200 m boðhlaupi karla sigraði ÍR, FH varð í öðru sæti og UFA í þriðja. Ítarlegri úrslit má sjá hér.