Of mikið sé gert úr sterkri stöðu Íslands

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir of mikið gert úr sterkri stöðu Íslands til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Þorsteinn Víglundsson, nýkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins, segir samtökin ekki taka formlega afstöðu á þessum tímapunkti, framhaldið sé í höndum þjóðarinnar. Andstaða félagsmanna sé neikvæðari en áður. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna boðuð 29. ágúst „Það eru mjög skiptar skoðanir meðal okkar félagsmanna og í raun og veru eru ívið fleiri sem eru andvígir aðild eins og stendur en eru fylgjandi,“ segir Þorsteinn. Kjósi þjóðin áframhaldandi viðræður taki við hefðbundin hagsmunagæsla af hálfu samtakanna. „Þá verði gætt að hagsmunum íslensks atvinnulífs á breiðum grunni og í okkar tilviki iðnaðar. Og þar er auðvitað að mörgu að huga,“ segir Þorsteinn. Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB er komin á dagskrá þingfundar Alþingis á mánudag. Stefnt er að atkvæðagreiðslu 29. ágúst. Umhugsunarvert hve knappan tíma ríkisstjórnin ætli málinu Lögum samkvæmt mega ekki líða meira en þrír mánuðir frá afgreiðslu málsins á þingi og þar til atkvæðagreiðslan fer fram. Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA segir umhugsunarvert hversu knappan tíma ríkisstjórnin ætli málinu. „Það er sá frestur sem stjórnvöld ákveða að nota í þessari tillögu. Samtök atvinnulífsins, eins og allir aðrir, munu vilja koma á framfæri sjónarmiðum og halda á lofti staðreyndum á þetta mál þegar umræðan fer af stað eftir að Alþingi hefur afgreitt málið,“ segir Bjarni. „Þetta er minnsti möguleg tímarammi sem lögin bjóða upp á og svo er það sumarið sem á að nýtast í þessa upplýsingagjöf. Þetta er svona aðeins til umhugsunar,“ segir hann. Skýr merki um aukna andstöðu gegn ESB hjá SI Þorsteinn segir samsetningu Samtaka iðnaðarins hafa breyst síðustu tvo áratugi. Merkja megi neikvæðari afstöðu til ESB en áður. „Þetta er önnur staða en var í kringum hrun þar sem samtökin voru jákvæð gagnvart aðild og félagsmenn almennt mjög jákvæðir líka. En við sjáum alveg skýr merki um hið gagnstæða í dag og andstaðan hefur heldur verið að aukast á síðustu þremur, fjórum árum hið minnsta,“ segir Þorsteinn. „Of mikið gert af því að gefa til kynna að það skipti máli að umsóknarríki séu í einhverri stöðu sterkri stöðu eða veikri stöðu“ Forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í gær að Ísland væri í annarri stöðu en eftir hrun, sterkari stöðu til viðræðna. „Mér finnst of mikið gert af því að gefa til kynna að það skipti máli að umsóknarríki séu í einhverri stöðu sterkri stöðu eða veikri stöðu,“ segir Bjarni. Það sem við vitum er að Evrópusambandið gefur ýmist tímafresti til að aðlaga sig að regluverki Evrópusambandsins eða undanþágur tímabundið,“ segir hann. „Þá er átt við að semja um sé hversu hratt þú ætlar að aðlaga regluverk þitt að Evrópusambandinu, og ef til þess kemur að menn fái einhverjar undanþágur, hversu lengi þær eiga að vara,“ segir Bjarni. „Ef það er þetta sem er verið að vísa til sem samningsstöðu þá finnst mér menn verða að beina sjónum að aðalatriðinu sem eru reglur Evrópusambandsins og hvað er að sækja fyrir Ísland inn í Evrópusambandið á þessum tíma.“ Önnur forgangsröðun hjá fyrirtækjum í landinu Meirihluti félagsmanna SA er andvígur aðild að ESB. Bjarni segir fyrirtækin í landinu vera með aðra forgangsröðun. „Fyrirtækin í landinu hafa verið með aðra forgangsröðun á undanförnum misserum líkt og ríkisstjórnin boðaði, að takast á við verðbólguna, ná niður vaxtastiginu, vinna að aukinni samkeppnishæfni atvinnulífsins. Þetta eru forgangsatriðin sem við höfum viljað leggja áherslu á,“ segir Bjarni Benediktson.