Salurinn fylltist í þrí­gang á fimm­tíu ára afmælistónleikum

Skólakór Kársnesskóla fagnar fimmtíu ára starfsafmæli á því skólaári sem nú er að líða. Þess til heiðurs voru haldnir þrennir tónleikar í dag en alls sungu um þrjú hundruð börn á tónleikunum en einnig mátti sjá gömlum kórbörnum bregða við.