„Hefði getað farið á hvaða veg sem er“

Kristinn Jón Ólafsson, nýr oddviti Pírata í Reykjavík, kveðst spenntur fyrir komandi kosningabaráttu. Hann segir verkefnið framundan krefjandi en að hann hafi ágæta reynslu úr pólitíkinni bæði sem varaborgarfulltrúi auk þess sem hann hafi starfað innan borgarkerfisins.