Rapparinn Balendrah Shah er nýkjörinn forsætisráðherra Nepal. Hann sigraði sitjandi forsætisráðherra , KP Sharma Oli, í þingkosningum sem fram fóru þar í landi í dag. Samkvæmt kjörstjórn í Nepal hlaut Shah, sem er 35 ára gamall, yfir þrefalt fleiri atkvæði en Oli í sínu kjördæmi. Shaw bauð sig fram fyrir flokkinn Rastriya Swatantra Party (RSP). Sigurinn þykir marka tímamót í nepölskum stjórnmálum og endurspegla aukin áhrif yngri kjósenda. Um 800 þúsund greiddu atkvæði í fyrsta sinn í kosningunum. Ríkisstjórnin féll í september Kosningarnar fóru fram í kjölfar umfangsmikilla mótmæla í Nepal í september sem leiddu til þess að ríkisstjórnin féll. Mótmælin brutust út eftir að Oli, forsætisráðherrann fyrrverandi, bannaði samfélagsmiðla og beindust síðar að stjórnmálakerfi landsins og stéttamun. Alls létust 77 í átökum sem fylgdu mótmælunum. Shah lét af embætti borgarstjóra í Katmandú í janúar til þess að bjóða sig fram gegn Oli. Flokkurinn hans hefur heitið því að skapa fleiri en milljón ný störf og draga úr atvinnuleysi þar í landi. Forsætisráðherrann nýi, sem þekktur er undir listamannsnafninu Balen, hefur verið virkur innan nepölsku hiphop-senunnar um árabil. Eitt þekktasta lag hans, Baildan , sem fjallar um fórnir, hefur fengið yfir 12 milljónir áhorfa á YouTube.