Tólf voru drepin í árásum Rússa á Úkraínu í nótt. Meira en tugur fólks særðist, börn þar á meðal. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir Rússa hafa skotið 29 eldflaugum og 480 drónum í árásunum, sem nokkrar beindust að orku- og járnbrautarinnviðum. Yfirvöld í Kharkiv, sem er næststærsta borg Úkraínu, segja eldflaugarárás hafa eyðilagt fimm hæða fjölbýlishús í borginni og drepið tíu manns, þar á meðal 13 ára stúlku og níu ára dreng. Að sögn Zelensky leita björgunarsveitir að fólki í rústunum. Gríðarleg árás á almenna borgara Einn lést í Dnipropetrovsk-héraði í austurhluta Úkraínu og þrír særðust í höfuðborginni Kyiv, segja yfirvöld. Í Sumy-héraði, sem liggur að Rússlandi, lést 24 ára maður í bílnum sínum þegar rússneskur dróni hæfði hann, að sögn embættismanna á svæðinu. Zelensky segir árásina í Kharkiv hafa verið gríðarlega árás á almenna borgara og hvetur bandamenn Úkraínu til að halda áfram að veita landinu hernaðarlegan stuðning. Símtal Zelensky við Macron Þá sagðist hann hafa upplýst Emmanuel Macron Frakklandsforseta um afleiðingar árásanna í símtali. Í símtalinu sagði Zelensky að mikilvægt væri að 90 milljarða evra lán Evrópusambandsins til Úkraínu, sem og næsta umferð refsiaðgerða gegn Rússlandi, sem Ungverjaland hindrar nú , „verði hrint í framkvæmd“. Rússar segjast hafa gert „gríðarlega nákvæmnisárás“ á hernaðarleg skotmörk í Úkraínu. Þeir neita því að jafnaði að beina spjótum sínum að borgaralegum innviðum. Rússneski herinn segist hafa stöðvað yfir 120 úkraínska dróna í nótt. Einn var drepinn og fjórir særðust í drónaárás Úkraínumanna að sögn rússneskra yfirvalda í Kherson-héraði í Úkraínu. Loftárásarviðvörun var gefin út um allt landið í nótt. Pólski flugherinn sagðist á samfélagsmiðlinum X að hafa sent herflugvélar á loft til að vernda lofthelgi sína á svæðum sem liggja að Úkraínu, eins og venjulega þegar Rússar gera stórfelldar árásir.