Þriggja bíla árekstur á Hafnarfjarðarvegi

Þrír bílar runnu saman vegna hálku á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes um klukkan átta í kvöld. Veginum var lokað í um hálftíma vegna árekstursins en hefur verið opnaður aftur. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu er enginn illa slasaður en tveir voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar. Sex til átta manns voru í bílunum þremur samanlagt, að sögn slökkviliðs. Einn bílanna var dreginn af vettvangi með kranabíl. Hafnarfjarðarvegur að vetri.RÚV / Hallgrímur Indriðason