Tindastóll vann topplið Grindavíkur

Nítjándu umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta lauk í kvöld með tveimur háspennuleikjum. Valur vann KR í framlengdum leik, 92-90 og Tindastóll vann topplið Grindavíkur, 92-87. Þetta var þriðji sigur Tindastóls í röð og fyrsta tap Grindavíkur eftir þrjá sigra í röð. Þetta var þriðji sigur Tindastóls í röð.RÚV / Mummi Lú Grindavík er með 32 stig á toppi deildarinnar, fjórum stigum á undan Stjörnunni og Tindastóli þegar þremur umferðum er ólokið í deildinni. Staðan í Bónus deild karla