„Held þetta hafi verið allt sem við viljum úr þessum slag“
Valur sigraði KR 92-90 á heimavelli í kvöld eftir hörku spennandi leik sem endaði í framlengingu. Leikurinn var lengst af jafn en mikilvægur þristur Kára Jónssyni og tvö vítaskot skildu liðin að og tryggðu Val sigurinn.