Bretar heimila Bandaríkjamönnum notkun herstöðva í varnarskyni

Bresk yfirvöld hafa heimilað Bandaríkjunum að nota tvær herstöðvar fyrir sérstakar og einangraðar varnaraðgerðir í stríðinu gegn Íran, eins og það er orðað í tilkynningu breska varnarmálaráðuneytisins. Önnur stöðin er í Gloucester-skíri á Englandi og hin á Chagos-eyjum í Indlandshafi. AFP-fréttaveitan segir tvær bandarískar herflugvélar hafa lent á ensku stöðinni í dag meðan mótmælendur komu saman fyrir utan. Breski forsætisráðherrann Keir Starmer ergði Donald Trump Bandaríkjaforseta þegar hann þvertók fyrir að taka þátt í árásarstríðinu gegn Íran og sá síðarnefndi sagði þann fyrrnefnda augljóslega engan Winston Churchill. Trump afþakkaði í gær að tvö bresk flugmóðurskip yrðu hugsanlega send til Mið-Austurlanda og kallaði Bretland „áður stórkostlegan“ samherja. Breska varnarmálaráðuneytið segir skipin alltaf í viðbragðsstöðu og hún hafi verið aukin svo þau geti brugðist hraðar við öllum áskorunum. „Þetta er svo sem allt í lagi Starmer forsætisráðherra en við þörfnust þeirra ekki lengur,“ skrifaði Trump á Truth Social og bætti við að hann gleymdi ekki viðbrögðum breskra stjórnvalda. „Við þörfnumst ekki fólks sem vill taka höndum saman við okkur í stríði sem við höfum þegar sigrað,“ skrifaði Trump. Starmer sagði upphaflega að Bretar ættu ekki að blanda sér í átök nema þau stæðust alþjóðalög og byggðu á skynsamlegri áætlun. Hins vegar hefðu hefndaraðgerðir Írana beinst gegn breskum hagsmunum og því hefði honum snúist hugur. Þingmenn í Verkamannaflokknum hafa lítinn áhuga á að endurtaka þau mistök sem þeir telja stuðning fyrrum forsætisráðherrans Tony Blair við innrásina í Írak 2003 hafa verið. Um 56 af hundraði telja Starmer hafa gert rétt með að blanda Bretum ekki í upphaflegu atlögurnar að Íran, samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í gær, föstudag. Aðeins 27 prósent sögðu hann hafa rangt fyrir sér. Nokkur þúsund gengu gegnum miðborg Lundúna í dag að bandaríska sendiráðinu, veifandi írönskum fánum, til að mótmæla stríðinu í Mið-Austurlöndum. Margir báru skilti með áletrunum á borð við „Stöðvið stríðsbrölt Trumps“ og „Hættið að vopnvæða Ísrael“.