Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írani bera ábyrgð á loftárás á stúlknaskóla í borginni Minab um síðustu helgi þar sem 150 nemendur fórust. „Já ég held þetta sé þeim að kenna. Eins og þið vitið eru Íranir afskaplega ónákvæmir með hergögnin sín,“ sagði Donald Trump við fréttafólk um borð í forsetaþotunni. „Þá hreinlega skortir alla nákvæmni,“ sagði Trump. Rannsókn á vegum New York Times bendir til að Bandaríkjaher megi kenna um árásina. Greining sérfræðinga á samfélagsmiðlafærslum, ljósmyndum og myndupptökum renni stoðum undir að skólinn hafi orðið fyrir sprengju á sama tíma Bandaríkjaher gerði árás á bækistöðvar íranska byltingarvarðarins við Hormussund. Það geri einnig gervihnattamyndir, upplýsingar frá herjum Bandaríkjanna og Ísrael auk upplýsinga bandarískra heimildarmanna. Írönsk stjórnvöld benda á Bandaríkjaher sem hefur ekki lýst yfir ábyrgð og segir árásina til rannsóknar. Utanríkisráðherrann Marco Rubio segir Bandaríkin aldrei myndu gera atlögu að skóla. Ísraelsk stjórnvöld þvo hendur sínar af málinu. Íranski byltingarvörðurinn sagðist í gær hafa gert árás á bandaríska herstöð í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem notuð hafi verið til árásarinnar á skólann.