Víða er hált á höfuðborgarsvæðinu.RÚV / Þorgils Jónsson Hálka er víða á höfuðborgarsvæðinu að því er segir á vef Vegagerðarinnar . Einnig er hált á Hellisheiði, Þrengslum, Mosfellsheiði, Kjósarskarðsvegi og í Hvalfirði. Hálka og hálkublettir eru á flestum vegum landsins. Dynjandisheiði verður lokuð vegna veðurs fram á mánudag og Siglufjarðarvegur um Almenninga er lokaður vegna snjóflóðs. Ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði, snjóþekja á Lyngdalsheiði og Landvegur er lokaður vegna vatnavaxta milli gatnamóta við Ísakot og Þjórsárdalsveg.