Miguel Diaz-Canel Kúbuforseti segir ráðstefnu um nýtt bandalag Ameríkuríkja byggja á nýlenduhyggju eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti staðhæfði að stjórn kúbverska kommúnistaflokksins væri á lokametrunum. „Fámennur fundur íhaldssamra, hægri sinnaðra nýlendusinna sem Bandaríkin boðuðu til heimilar banvæna beitingu hervalds til að leysa innri vandamál og viðhalda friði í löndum þeirra,“ skrifaði Diaz-Canel á X. Hann vísar þarna til ráðstefnu sem Trump boðaði til á Flórída í gær með leiðtogum nokkurra Ameríkuríkja, þar sem til varð hernaðarbandalagið Skjöldur Ameríku. Því er ætlað að að berjast gegn fíkniefnabrotum og uppræta fíkniefnasamtök í Norður- og Suður-Ameríku. Hafnbann á olíuflutninga til Kúbu sem Trump fyrirskipaði hefur dýpkað efnahagskreppuna þar enn frekar. Landsmenn glíma við orku- og fæðuskort og hörgul á lyfjum. Kristi Noem , sem þar til nýverið var heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, verður sérstakur erindreki nýja bandalagsins en ekki er ljóst hvað það hlutverk felur í sér.