Að minnsta kosti fjórir voru drepnir og tíu særðust þegar ísraelsk eldflaug hæfði Ramada-hótelið í Beirút, höfuðborg Líbanon. Heilbrigðisráðuneyti landsins greinir frá þessu. Reuters segir þetta hótel og fleiri meðfram Miðjarðarhafsströndinni hýsa fólk sem flúið hefur stríðsátök annars staðar í Líbanon. Ísraelsher segist hafa beint atlögunni að liðsforingjum í íranska byltingarverðinum. Þeir hafi verið að undirbúa árásir á Ísraelsríki og almenna borgara þar. Ljósmyndari AFP segir tugi gesta hafa flúið hótelið í ofboði eftir að árásin var gerð. Raouché-hverfið í Beirút er vinsæll ferðamannastaður og var í skjóli undan árásum Ísraelshers meðan á stríðinu við Hezbollah-hreyfinguna stóð, sem lyktaði með vopnahléi í nóvember 2024. Þetta er önnur árásin sem Ísraelar gera á hótel á Beirút-svæðinu á innan við viku. Á miðvikudag hæfði flugskeyti hótel í Hazmieh-hverfinu, nærri forsetahöllinni, nokkrum ráðuneytum og erlendum sendiskrifstofum. Hezbollah sögðust í morgun hafa skotið eldflaugum að herstöðvum og borg handan landamæranna í hefndarskyni fyrir árásir Ísraelshers á líbanskar borgir og bæi. Hersveitir Hezbollah og Ísraelshers hefðu einnig barist nærri landamæraborginni Aitaroun.