„Það var Hulda Halldóra, góð vinkona mín og mentorinn minn í þessu verkefni, sem hvatti mig til þess að klæða mig upp fyrir lyfjagjafir,“ segir búningahönnuðurinn og stílistinn Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir. Hún greindist með brjóstakrabbamein í október síðastliðnum og tískan varð ákveðið haldreipi í þessu krefjandi verkefni.