Þriggja daga leik­hús fá­rán­leikans

Stemningin á Austurvelli dagana 4.–6. apríl 2016, í kjölfar uppljóstrana úr Panama-skjölunum um tengsl forsætisráðherra við aflandsfélag einkenndist af mikilli reiði, samstöðu og pólitískri spennu. Slagorð á borð við „Sigmundur, segðu af þér“ og „Burt með ríkisstjórnina“ heyrðust úr mannfjöldanum. Á örfáum dögum breyttist miðborg Reykjavíkur í vettvang einna stærstu mótmæla í íslenskri stjórnmálasögu.