Vaxandi vindur og éljagangur í dag

Lægðardrag suður af landinu veldur éljagangi og vaxandi suðaustanátt í dag, fyrst á sunnanverðu landinu um hádegi og svo áfram til norðausturs. Búast má við suðlægri átt, 5 til 13 metrum á sekúndu, og éljum eða slydduéljum. Suðaustan 10 til 18 metrar á sekúndu síðdegis, en hægari vestantil. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig yfir daginn. Dregur úr vindi seint í kvöld og kólnar og léttir til norðaustanlands. Von er á nýrri lægð á morgun og með henni fylgir vaxandi austan- og suðaustanátt og snjókoma eða slydda með köflum. Búast má við 10 til 18 metrum á sekúndu með rigningu síðdegis en lengst af verður þurrt á Norðausturlandi. Hiti 2 til 6 stig seinnipartinn. Annað kvöld snýst í suðlæga átt, 8 til 13 metrar á sekúndu, með skúrum eða slydduéljum suðvestantil. Hálka og þungfært víða um land Hálkublettir eru á helstu leiðum á höfuðborgarsvæðinu, hálka á helstu leiðum á Suðurlandi, Suðvesturlandi og Norðurlandi. Snjóþekja og hálka er á öllum vegum á Suðausturlandi og eitthvað er um éljagang. Þungfært er á Fróðárheiði og þæfingsfærð er í Bröttubrekku, Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði. Dynjandisheiði er lokuð og er ekki líklegt að hún opni fyrr en á morgun, mánudag.