Um þessar mundir eru 80 ár síðan Erik Balling (1924–2005) steig fyrst fæti inn í kvikmyndaver Nordisk Film í Valby við Kaupmannahöfn. Hann var þá 22 ára, hafði snúið baki við dýralæknanámi eftir tveggja ára nám og ákveðið að reyna fyrir sér í kvikmyndaheiminum. Fyrst í stað sinnti hann ýmsum störfum í kvikmyndaverinu, var til dæmis aðstoðarmaður leikstjóra. Þegar Erik...