Skólakór Kársness í 50 ár: „Það eru bara allir sigurvegarar“

Þúsundir barna hafa sungið með Skólakór Kársness í þau 50 ár sem kórinn hefur verið starfandi. Blásið var til afmælishátíðar þar sem núverandi og fyrrverandi kórbörn stigu á svið. Þórunn Björnsdóttir, Tóta, stofnaði kórinn og þær Þóra Marteinsdóttir og Álfheiður Björgvinsdóttir hafa nú tekið við. Þær segja að barnakórar hafi sannað mikilvægi sitt. „Það er svo dýrmætt fyrir börn að fá að vera í samhljómi. Að þeirra raddir passi við aðrar raddir. Og best er náttúrulega þegar þau eru hamingjusöm og þau eru hamingjusöm þegar þau eru að syngja. Mér finnst líka svo gaman að það er engin keppni. Það er aldrei neinn sem tapar í kór. Þar eru bara allir sigurvegarar.“ Það var ljóst þegar fyrrum kórfélagar komu saman og sungu undir stjórn Tótu, að kórstarfið á sér djúpar rætur í hjörtum þeirra.