Hóta öllum mögu­legum arf­tökum Khamenei

Donald Trump forseti Bandaríkjanna útilokar ekki að senda bandaríska hermenn til Mið-Austurlanda en segist hafa nánast gjöreytt írönsku stjórninni. Á sama tíma er greint frá því á Guardian að nokkuð víðtæk samstaða hafi náðst um eftirmann æðsta leiðtoga Írans, Ayatollah Ali Khamenei. Það sagði Ayatollah Mohammadmehdi Mirbaqeri, meðlimur sérfræðingaráðsins, í dag, að sögn fréttastofunnar Mehr.