Landsamráðsfundur ríkislögreglustjóra um aðgerðir gegn ofbeldi var haldinn 4. mars sl. og er enn ein staðfesting þess að óþol gagnvart ofbeldi fer vaxandi í samfélaginu. Vilji til að takast á við ofbeldi, hvar sem það birtist, virðist verða sífellt skýrari. En þegar þolendur stíga fram reynir á samfélagið allt, hvernig við bregðumst við.