Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bóka­markaðnum

„Staðan eftir þennan dag er þannig að seldar bækur eru 103.997 á móti 102.216 í fyrra og enn eru fimm dagar eftir,“ sagði Bryndís Lofts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Bóka­markaðar Félags ís­lenskra bókaút­gef­enda, eftir lokun í gær þegar ljóst var að sölu­met síðasta árs verði bætt hressi­lega.