Safnað er nú fyrir fráteknum flygli

Í Dalabyggð er 50 ára afmæli tónlistarskóla nú fagnað með söfnun fyrir kaupum á nýjum flygli í félagsheimilið í Búðardal, Dalabúð, sem verður 60 ára á næsta ári. Kaupin miða að því að efla menningarstarf á svæðinu, en tónlistarstarf á svæðinu hefur löngum verið öflugt.