Aðdáendur Super Mario Bros-tölvuleikjaheimsins komu saman í rafíþróttamiðstöðinni Next Level Gaming í Egilshöll í Grafarvogi í dag, á lokadegi tölvuleikjahátíðarinnar Mario-Con. Fyrsta útgáfa leiksins Super Mario Bros kom á markað fyrir rúmum 40 árum og hefur hann notið sívaxandi vinsælda um allan heim. Hátíðin hófst á þriðjudag og voru gestir á öllum aldri. Þar var meðal annars boðið upp á jazz-tónleika, bingó auk þess sem keppt var í fjölda tölvuleikja. Ákveðin nostalgía sem fylgi því að spila Super Mario Bros-tölvuleiki „Hugmyndin að Mario-Con tölvuleikjahátíðinni kom í kjölfar þess að ég hafði stjórnað fjölda Mario-Cart tölvuleikjakeppna. Mig langaði í öðruvísi viðburð, ekki bara tölvuleikjakeppni, því það er takmarkandi á þann fjölda fólks sem getur komið á viðburðinn,“ segir Adam Scanlon, annar tveggja eigenda Next Level Gaming og skipuleggjandi hátíðarinnar. En hvað skyldi það vera við Super Mario Bros- leikina sem vekur áhuga? „Mario hefur verið til í áratugi. Fólk ólst upp við að spila leikina, leikina með Mario, sem eru meðal bestu tölvuleikja sem hafa verið gerðir. Fyrir eldri tölvuleikjaspilara er mikil nostalgía sem felst í að spila þá, og fyrir yngri er það sama uppi á teningnum. Það er verið að gefa út nýja Mario-leiki, leikjatölvur hjá Nintendo. Þannig fólk elskar bara Mario. Hann er maðurinn.“ Aðdáendur Super Mario skemmtu sér og öttu kappi á lokadegi tölvuleikjahátíðarinnar Mario Con sem fór fram í Egilshöll. Fram fór keppni í leiknum Super Smash Bros og sögðu keppendur leikinn gefa sér algjört frelsi. „Ég elska þennan leik“ Þrjátíu tölvuleikjaspilarar öttu kappi á lokadegi hátíðarinnar í dag í leiknum vinsæla Super Smash Bros. Bergsteinn Ásgeirsson segir hreyfinguna það besta við leikinn. „Það er svona skæri, blað og steinn leikurinn á bak við allt. Að geta hreyft sig í kringum andstæðinginn, reyna að giska hvað hann er að fara að gera og nota þá þekkingu. Ég elska þennan leik, flest við hann.“ Þau Aþena Ýr Ingimundardóttir og Jason Helgi Hallgrímsson höfðu komist í gegnum fyrsta útslátt keppninnar þegar fréttastofa náði af þeim tali. Þau segjast þrautreynd í slíkum tölvuleikjakeppnum. „Ég er búin að vera að keppa í fimm ár og hann er bara búinn að vera að keppa í eitt og er strax orðinn númer tvö á landinu. Ég er ótrúlega stolt af honum,“ segir Aþena Ýr, sem hefur unnið keppnina fjögur ár í röð. Hvað er það við þennan leik sem er svona skemmtilegt? „Þessi leikur er list. Það er bara algjört frelsi. Það er ekkert sem þú planar fyrirfram, þú ákveður allt á stundinni, án þess að ákveða það. Þú bara gerir það. Það er hreyfingin. Þetta er algjört óhapp. Þetta átti að vera barnaleikur, hann er eldri en ég, en það er eitthvað við hann. Hann er bara fullkominn,“ segir Aþena. „Það eru svona folk-heroes sem eru með alvöru sögu. Og maður byrjaði að fylgjast með því og þá hugsar maður: Hvað er svona gott við þennan tölvuleik? Þetta er eini sem hefur náð að lifa mjög lengi og er með svo mikið hópafl,“ segir Jason.