Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, segir stjórnvöld þar aldrei hafa farið fram á vopnahlé eða viðræður um slíkt. Ummælin eru viðbrögð við orðum Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem sagði að Íranar vildu komast að samkomulagi sem Bandaríkin hefðu ekki enn getað fallist á, því að skilmálarnir væru ekki orðnir ásættanlegir. Araghchi segir að Íranar sjái enga ástæðu til að ræða við Bandaríkjamenn, stríðið sé háð að frumkvæði þeirra og Íranar haldi áfram að verjast. „Við sjáum enga þörf á því að tala við Bandaríkjamenn vegna þess að þegar við vörum í viðræðum við þá ákváðu þeir að ráðast á okkur.“ Hann segir að stríðið sé alfarið að frumkvæði Trumps og Bandaríkjanna, því muni Íranar halda áfram að verja sitt land.