„Klárt að það eru engar rang­færslur“

Lögmaður Rammagerðarinnar vísar ásökunum Isavia á bug um að forsvarsmenn verslunarinnar fari með rangfærslur um deilu Rammagerðarinnar við ríkisfyrirtækið. Isavia lokaði þremur verslunum Rammagerðarinnar í fyrrinótt þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól. Lögmaðurinn segist búinn að setja inn lögbannsbeiðni til sýslumanns sem verði vonandi afgreidd á morgun, mánudag.