Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur segir að veðrið fari að skána með kvöldinu og í nótt. Veðrið gangi þó ekki alveg niður og búast má við norðanhríð, sérstaklega á Vestfjörðum á morgun. Hættustig er vegna snjóflóðahættu á Ísafirði og óvissustig á norðanverðum Vestfjörðum. Viðloðandi ofankoma verður víða á Norðurlandi næstu daga. Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur segir að veðrið skáni með kvöldinu og í nótt. Aðfaranótt miðvikudags má búast við því að veðrið gangi almennilega niður, spáð er asahláku og hvassviðri á fimmtudag. „Þannig að þetta er svona úr einum öfga í annan.“ „Þetta gæti þá þýtt svona einhver meira en hálfur metri af jafnföllnum snjó í fjöllum en svona aðeins minna í byggð, kannski svona 20-30 sentímetrar í byggð, þarna á þessum svæðum eins og norðan til á Vestfjörðum og þarna yst á Tröllaskaga, Siglufirði og Ólafsfirði.“ Hrafn segir að áfram megi búast við hættuástandi og ófærð á vegum, aðfaranótt miðvikudags megi búast við því að veðrið gangi almennilega niður og búist við asahláku og hvassviðri á fimmtudag „þannig að þetta er svona úr einum öfga í annan.“