Garðabæjarlistinn var kynntur í Sveinatungu á Garðatorgi í Garðabæ í gær. Í tilkynningu frá flokknum segir að flokkurinn sé óháður flokkur með skýrt erindi. Flokkurinn starfi fyrir Garðbæinga og leggi áherslu á jafnt aðgengi fyrir alla íbúa að lífsgæðum sveitarfélagsins. Flokkurinn á tvo bæjarfulltrúa í núverandi bæjarstjórn.