Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að framtíð Atlantshafsbandalagsins sé mjög slæm ef bandalagsþjóðir aðstoða ekki Bandaríkjamenn í Íran. Bandaríkjaforseti lét þessi ummæli falla í viðtali við dagblaðið The Financial Times . Trump sagði að þar sem Bandaríkin hefðu aðstoðað Úkraínu í innrásarstríði Rússa í Úkraínu þá ætlist hann til að Evrópuríki aðstoði Bandaríkin við Hormússund. Trump sagði að ef það verða engin eða neikvæð viðbrögð bandalagsþjóða við þessari beiðni hans, þá verði það mjög slæmt fyrir Atlantshafsbandalagið. Trump hefur áður óskað eftir því að þær þjóðir sem reiði sig á olíu frá ríkjum við Persaflóa, aðstoði við að opna Hormússund og tryggja öryggi olíuflutningaskipa um sundið. Bandarikjaforseti hefur einnig óskað eftir aðkomu Kína að opnun Hormússunds. Hann segir að ráðgerð opinber heimsókn hans til Kína gæti frestast, en Trump vill fá það á hreint fyrir heimsókn sína hvort Kína ætli að taka þátt í opnun Hormússunds eða ekki.