Hættuástandi lýst yfir vegna eldsneytismengunar í Dniester-ánni

Stjórnvöld í Moldóvu hafa lýst yfir 15 daga hættuástandi á vatnasvæðinu í og við Dniester-ánni í Moldóvu vegna eldsneytismengunar. Talið er að eldsneyti hafi lekið í ánna þegar Rússar gerðu árásir á Dniester-vatnsaflsvirkjunina í Úkraínu 7. mars. Stjórnvöld í Úkraínu greindu fyrst frá menguninni þremur dögum síðar, þegar hennar varð vart nærri þorpinu Lyadova í Úkraínu. Mengunin barst með Dniester-ánni áfram inn í Moldóvu. Yfirvöld þar í landi hafa komið upp hreinsibúnaði og gefið út viðvaranir til íbúa um að fylgja leiðbeiningum stjórnvalda á meðan hættuástandið varir. Íbúar eiga ekki að drekka, elda eða nota vatn frá ánni fyrr en hættuástandi hefur verið aflýst. Ekki er vitað hversu mikið eldsneyti lak í ána en úkraínsk yfirvöld hafa sagt mengunina vera umtalsverða. Stjórnvöld í Moldóvu hafa óskað eftir aðstoð Evrópusambandsins til að takast á við mengunina. Stjórnvöld í Úkraínu og Moldóvu skilgreina Dniester-ána sem mikilvægt vatnsból og að eldsneytismengun ógni lífríki í ánni. Umhverfismálaráðherra Moldóvu, Gheorghe Hajder, hefur sagt Rússa eina bera ábyrgð á menguninni.