Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu

Karlmaður sem dæmdur var fyrir að nauðga fjórtán ára barni starfar við akstur og dreifingu pósts í litlu samfélagi á Norðurlandi vestra. Gerandi og þolandi eru bæði búsett í sveitarfélaginu. Aðstandendur brotaþola telja brýnt að verklag fyrirtækja og öryggismat sé endurskoðað þegar starfsmenn eru sakfelldir fyrir svo alvarleg brot. Hinn dæmdi segist vera fjölskyldumaður og ekki hættulegur.