Kvikmyndin One Battle After Another , fékk flest verðlaun eða sex talsins, á Óskarverðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í nótt að íslenskum tíma. Kvikmyndin meðal annars verðlaunuð sem besta kvikmynd ársins og fékk einnig verðlaun fyrir bestu leikstjórn ársins. Kvikmyndin Sinners fékk alls fjögur verðlaun en myndin var tilnefnd til 16 verðlauna, sem er sögulegt met í fjölda tilnefninga. Autumn Durald Arkapaw, skráði sig á spjöld sögunnar en hún er fyrsta konan til að vinna Óskarsverðlaun fyrir stjórn kvikmyndatöku í Sinners . Leikarinn Michael B. Jordan fékk Óskarinn fyrir aðalhlutverk í kvikmyndinni Sinners . Írska leikkonan Jessie Buckley fékk verðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki í Hamnet . Sean Penn fékk verðlaun sem besti aukaleikari í myndinni One Battle After Another og Amy Madigan fékk verðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki í myndinni Weapons . Norska kvikmyndin Affeksjonsverdi , sem kvikmyndaunnendur á Íslandi þekkja undir heitinu Sentimental Value , fékk verðlaun sem besta erlenda kvikmyndin. Þá vann kvikmyndin Mr. Nobody Against Putin verðlaun sem besta heimildamyndin. Spjallþáttastjórnandinn Conan O'Brien var kynnir kvöldsins. Hann fór með fögur minningarorð um nokkrar stórstjörnur sem létust á síðasta ári, þar á meðal leikstjórann Rob Reiner sem var myrtur á heimili sínu í desember og leikarans Roberts Redfords var einnig minnst.