Hvar á Duplantis heima í umræðunni um þá bestu í sögunni?

Sænski stangarstökkvarinn Armand Duplantis setti sitt fimmtánda heimsmet í stangarstökki á fimmtudag. En hversu miklir eru yfirburðirnir? Er hægt að bera hann saman við aðra kappa? Sérfræðingurinn Sigurbjörn Árni Ásgrímsson fór yfir málið. Viðtalið og umfjöllunina má sjá hér að neðan. Sænski hástökkvarinn Mondo Duplantis setti enn eitt heimsmetið nýverið og er í fantaformi fyrir HM innanhúss. Þetta var hans 15. heimsmet, en hvernig metum við árangurinn? Sigurbjörn Árni Arngrímsson fór yfir málið. Hann segir stangastökkvara í einstakri stöðu því þeir ákveða hæð hvers stökks sjálfir. „Ef þeir stykku bara upp í loftið og svo yrði bara mælt. Þá færi hann kannski 6,38 og hann áttar sig á því að hann er ekkert að fara að slá það met.“ Fimmtán heimsmet í einni og sömu greininni hljómar fljótt á litið alveg einstakt afrek. Stangarstökk, eins og hástökk, nýtur reyndar sérstöðu þegar kemur að metasetningu því þar velja keppendur sér hæðina sem á að stökkva hverju sinni og geta því bætt einum og einum sentimetra við í hvert sinn. Það geta hlauparar og kastarar og meira að segja lang- og þrístökkvarar ekki gert. Duplantis eða Bubka? Duplantis virðist í fínu formi í aðdraganda HM innanhúss, sem hefst á föstudag. Þessi mikli íþróttamaður er þó aðeins tæplega hálfdrættingur á við forvera sinn Sergey Bubka þegar kemur að metum. Heimsetin fimmtán blikna í samanburði við forvera Duplantis, Sovét- og síðar Úkraínumanninn Sergey Bubka. Hann setti 35 sinnum heimsmet í stangarstökki. Þetta er þó samanburður sem Sigurbjörn segir að sé ekki alveg sanngjarn. „Þá voru skráð met inni og úti. Hann bætti metið alltaf um einn sentímeter og það var frægt.“ Í dag er bara eitt met skráð út frá stökkum óháð því hvort að stökkið væri inni eða úti. Duplantis eða Bolt? Mismunandi getu frjálsíþróttafólks til að setja met segir Sigurbjörn Árni vera eina ástæðu þess að ekki megi eingöngu líta til fjölda meta til að ákvarða mikilfengleika íþróttafólks. Hann horfir til dæmis frekar til Usain Bolt en Bubka. Þar getur tíminn reynst ágætis mælikvarði. Yfirburðir yfir langan tíma sé mögulega betri mælikvarði. „Yfirburðirnir hjá þessum. Þetta var nánast áratugur hjá Bolt, og þetta er orðið 5-6 ár hjá Duplantis. Þannig að tíminn sem þeir eru ráðandi í greininni segir kannski svolítið til um getu þeirra,” sagði hann. HM í frjálsíþróttum hefst 20. mars og stendur yfir til 22. mars. Sýnt verður frá mótinu á RÚV.