Kvikmyndin One Battle After Another var sigursælust á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt og hreppti sex verðlaun, þar á meðal sem besta mynd og fyrir bestu leikstjórn. Vampírumyndin fékk fern verðlaun úr sextán tilnefningum. Aðstandendur Marty Supreme fóru tómhentir heim eftir að hafa hlotið níu tilnefningar.