Skítamix sem börnin borga

Skýrsla sem lögð var fram í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur í mars sýnir að 21 prósent leikskóla og 16 prósent grunnskóla í borginni hafa þurft að loka tímabundið, flytja starfsemi eða starfa við verulega skertar aðstæður vegna viðhalds og loftgæðavandamála. Þessi staða hefur áhrif á hundruð barna og starfsfólks á hverjum degi.