Fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður verður haldið áfram á Alþingi í dag. Þingfundur hefst klukkan þrjú og eru þrír liðir á dagskrá. Fundurinn hefst á óundirbúnum fyrirspurnum þar sem átta ráðherrar verða til svara. Því næst tekur við sérstök umræða um fangelsismál að beiðni Ásu Berglindar Ingadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, þar sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra verður til andsvara. Þriðji liðurinn og líklega sá tímafrekasti snýr að þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Fimmtán þingmenn eru á mælendaskrá. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögu í síðustu viku.RÚV / Ragnar Visage