Sjáðu frábært sigurmark Loga í Tyrklandi

Logi Tómasson skoraði laglegt sigurmark Samsunspor gegn Kayserispor í tyrknesku úrvalsdeildinni í gær. Logi, sem er á sínu fyrsta tímabili í Tyrklandi, var á sínum stað í byrjunarliðinu í gær. Það stefndi í 1-1 jafntefli þegar Logi skoraði í uppbótartíma. Samsunspor er í 7. sæti deildarinnar með 35 stig. Markið er hér að neðan. Samsunspor, Lesa meira