Handtekinn þegar hann beið tveggja kílóa af kókaíni

Héraðssaksóknari hefur ákært rúmlega þrítugan karlmann fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Maðurinn fékk sendan pakka með pósti frá Svíþjóð sem í voru 2,3 kíló af kókaíni. Í ákæru segir að maðurinn sé ákærður fyrir að gera tilraun til að taka á móti fíkniefnunum á heimili sínu í Kópavogi. Þá var lögregla búin að fjarlægja kókaínið svo maðurinn greip í tómt. Lögregla krefst þess að maðurinn verði dæmdur til fangelsisvistar og að auki þess að fíkniefnin og tveir farsímar mannsins verði gerðir upptækir. Héraðsdómur Reykjaness.RÚV / Ragnar Visage