Markvörðurinn Ísak Steinsson, sem leikur með Drammen í Noregi, hefur dregið sig úr íslenska landsliðshópnum í handbolta sem mætir Svíþjóð í tveimur æfingaleikjum í vikunni vegna meiðsla. Landsliðsmarkvörðurinn Ísak Steinsson missir af SvíaleikjunumRÚV / Mummi Lú HSÍ greinir frá á samfélagsmiðlum sínum en ekki kemur fram hversu alvarleg meiðslin eru né hvort annar markmaður verði kallaður inn í staðinn. Björgvin Páll Gústavsson og Viktor Gísli Hallgrímsson eru í hópnum . Fyrri leikurinn verður á Hlíðarenda á fimmtudaginn og sá seinni í Kaplakrika á laugardaginn.