Ísraelsher hefur landhernað í suðurhluta Líbanon

Ísraelsher hefur hafið landhernað í suðurhluta Líbanon. Herinn segir að um takmarkaða hernaðaraðgerð á jörðu niðri sé að ræða. Henni sé beint að Hezbollah-samtökunum. Líbanon varð aðili að stríðinu í Mið-Austurlöndum 2. mars eftir að Hezbollah gerði árásir á Ísrael í kjölfar þess að æðstiklerkurinn Ali Khamenei var ráðinn af dögum í loftárás. Síðan þá hafa Ísraelar gert loftárásir í Líbanon, einkum í suðurhluta landsins. „Á síðustu dögum hafa hermenn úr 91. herdeild Ísraelshers hafið takmarkaðar og hnitmiðaðar aðgerðir á jörðu niðri sem beinast gegn höfuðvígjum Hezbollah í suðurhluta Líbanon,“ segir í tilkynningu hersins sem AFP-fréttaveitan vitnar til. Markmið hernaðaraðgerðanna sé að „útrýma hryðjuverkamönnum á þessu landsvæði og eyðileggja innviði þeirra til þess að koma í veg fyrir ógnina sem af þeim stafar“. Þannig megi auka öryggi íbúa í norðurhluta Ísraels. Dagblaðið Hareetz greinir frá því að stjórnvöld í Ísrael hafi nú til skoðunar tillögu franskra stjórnvalda sem felur í sér að Líbanir viðurkenni Ísraelsríki formlega í skiptum fyrir stöðvun árása Ísraelshers. Herinn myndi að auki draga hermenn sína til baka úr landinu. Þeir hafa haldið til á fimm stöðum í landinu og þannig farið á svig við vopnahléssamkomulag frá nóvember 2024. Líbanska heilbrigðisráðuneytið greindi frá því í gær að 850 hefðu verið drepin, þar á meðal fjöldi barna, í árásum Ísraelshers á Líbanon síðan 2. mars, að því er segir í umfjöllun Guardian .