Ætla að tæma biðlista í hjúkrunarrými fyrir lok 2029

Rúmlega 1.300 ný hjúkrunarrými verða tekin í notkun næstu fjögur árin og rúmlega 150 önnur bætast við vegna endurbóta á eldri rýmum. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnti áætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila til ársloka 2030 í dag. 200 manns voru í biðrýmum í byrjun árs og 525 til viðbótar á biðlista eftir hjúkrunarrými. Inga Sæland er mennta- og barnamálaráðherra en málaflokkurinn liggur hjá henni. Hún segir áætlunina marka þáttaskil. Inga og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, undirrituðu einnig samning um nýtt hjúkrunarheimili við Vetrarmýri með allt að 100 rýmum. Áætlað er að það verði opnað árið 2029. Meirihluti nýrra rýma verður á höfuðborgarsvæðinu, eða tæplega 900, um 140 rými verða tekin í notkun á Norðurlandi og álíka mörg á Suðurnesjum. Tekið er fram að áformin séu háð skipulagshraða í sveitarfélögum, hraða í útboðsferlum og uppbyggingarhraða. Enginn á biðlista í árslok 2029 Áætlunin gerir ráð fyrir viðsnúningi á biðlistum næstu árin. Í lok ársins 2029 gerir ráðuneytið ráð fyrir því að rúmlega áttatíu verði í biðrýmum og enginn á biðlista. Markmið stjórnvalda er að 75% fólks með samþykkt færni- og heilsufarsmat fái hjúkrunarrými innan 90 daga. Meðalbiðtími eftir hjúkrunarrýmum í ársbyrjun 2025 var lengstur á Norðurlandi, eða 207 dagar. Í öllum landshlutum fór meðalbiðtími yfir 90 daga markmiðið, nema á Vestfjörðum þar sem hann var 59 dagar. Staðsetning nýrra hjúkrunarrýma samkvæmt áætlun: 2026 – 100 rými í Urðarhvarfi í Kópavogi, 50 rými á Nesvöllum í Reykjanesbæ og fjögur rými á Ísafold í Garðabæ. 2027 – 90 rými á Keilisbraut í Reykjanesbæ, 87 rými á Nauthólsvegi í Reykjavík, 67 rými í Sóltúni í Reykjavík, 26 á Ási í Hveragerði, sex á Hvammi í Húsavík og sex í Skjólgarði á Höfn. 2028 – 140 rými á Þursaholti á Akureyri, 125 rými á Hraunvangi í Hafnarfirði, 66 rými á Hömrum í Mosfellsbæ, 60 á Höfða á Akranesi og 60 á Eir í Grafarvogi. 2029 – 108 rými á Vigdísarholti í Hafnarfirði, 100 rými á Mosavegi í Reykjavík, 100 í Vetrarmýri í Garðabæ og 20 á Eyri á Ísafirði. 2030 – 20 rými í Hulduhlíð á Eskifirði, 40 rými á Suðurlandi og 80 rými á höfuðborgarsvæðinu. Staðsetning þeirra síðastnefndu hefur ekki verið ákveðin. Í lok ársins 2030 er gert ráð fyrir að á landinu verði alls 4.417 hjúkrunarrými. Miðað við mannfjöldaspá eigi 4.508 eftir að þurfa hjúkrunarrými og því verði 91 í biðrými og enginn á biðlista. Miðað við mannfjöldaspá er búist við því að fjöldi íbúa 80 ára og eldri tvöfaldist fram til 2040. Í áætluninni segir að fjölgun hjúkrunarrýma nægi ekki ein og sér til að mæta þörf aldraðra fyrir þjónustu heldur sé þörf á góðu samstarfi ríkis og sveitarfélaga og fjölbreyttri þjónustu.