Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming

Ef ný framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila á landsvísu gengur eftir verða ríflega 1.500 hjúkrunarrými tekin í gagnið fyrir árslok 2030, þar af 90% þeirra ný viðbót, og gert er ráð fyrir því að biðlistar eftir hjúkrunarrýmum muni svo til tæmast fyrir árslok 2029.