Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram tillögu að nýrri samgöngustefnu fyrir borgina þar sem höfuðáherslan er á að hætta við borgarlínuverkefnið. Þess í stað vilja þau efla núverandi strætisvagnakerfi, svo sem með fleiri forgangsakreinum og forgangi strætisvagna á umferðarljósum. Kjartan og Marta voru kosin í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn en gengu til liðs við Miðflokkinn eftir að þau fengu ekki sæti á lista fyrir komandi kosningar. Þau sögðu ástæðuna vera andstöðu þeirra við borgarlínu. Þau mynduðu í framhaldinu nýjan borgarstjórnarflokk ásamt Helga Áss Grétarssyni varaborgarfulltrúa sem hafði áður skipt úr Sjálfstæðisflokknum yfir í Miðflokkinn. Í tillögu sem Kjartan og Marta hyggjast leggja fyrir borgarstjórn segir að falla eigi frá áformum um borgarlínu. Þess í stað eigi að stórbæta almenningssamgöngur með eflingu núverandi strætisvagnakerfis. Þau vilja líka flýta framkvæmdum við Miklubrautargöng og gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Í stað borgarlínu vilja þau meðal annars fjölga forgangsakreinum hægra megin við almennar umferðaræðar á umferðarþungum stöðum, tryggja forgang strætisvagna með snjallstýringu umferðarljósa og ráðast í umbætur á leiðakerfi strætós.