Pósturinn sendir starfs­manninn í leyfi

Pósturinn hefur sent Andrés Pál Ragnarsson í leyfi en hann var í desember dæmdur fyrir nauðgun og kynferðislega áreitni gagnvart fjórtán ára barni. Pósturinn segist taka málið alvarlega og að þau ætli að endurskoða verklag og ferla í kjölfar þessa máls.