Mímir sér rautt yfir áfengissölu

Mímir Kristjánsson, þingmaður í Noregi, brigslar Jonasi Gahr Støre forsætisráðherra um að skorta þor til að setja hnefann í borðið og taka fyrir leyfi norskra stjórnvalda til áfengissölu á norskum öldurhúsum allt til klukkan sex að morgni meðan á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu stendur í sumar.