Þrír Íslendingar hafa hlotið keppnisrétt á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum innanhúss sem hefst í Torun í Póllandi á föstudag. Allar þrjár eru konur og munu tvær þreyta frumraun sína á stórmóti í fullorðinsflokki. Sú þriðja er öllu reynslumeiri á stóra sviðinu þó hún hafi ekki verið áberandi þar að undanförnu. Aníta Hinriksdóttir er með keppnisrétt í 1500 m hlaupi á HM. Aníta sem hefur keppt á HM og EM bæði innan- og utanhúss og á Ólympíuleikum hefur þó ekki keppt á stórmóti síðan á Evrópumótinu utanhúss árið 2018. Það sama ár keppti hún síðast á HM innanhúss en fer nú aftur á mótið átta árum síðar. Aðal grein Anítu var lengst af 800 m hlaup, en hún vann meðal annars til bronsverðlauna í greininni á EM innanhúss árið 2017. Christina Alba Hafliðadóttir, 18 ára keppir svo í 60 m hlaupi á HM í Torun og Júlía Kristín Jóhannesdóttir, 20 ára, í 60 m grindahlaupi. Júlía Kristín hefur í ár þríbætt Íslandsmetið í greininni og er það nú 8,18 sekúndur, sett í Alabama í Bandaríkjunum 28. febrúar. Fyrst bætti Júlía Kristín Íslandsmetið um miðjan febrúar og sló þá 30 ára gamalt met Guðrúnar Arnardóttur frá árinu 1996. RÚV mun sýna beint frá öllum keppnishlutum HM innanhúss í frjálsíþróttum á föstudag, laugardag og sunnudag. Aníta Hinriksdóttir keppir í undanrásum 1500 m hlaupsins klukkan 17:22 á föstudag, Christina Alba keppir í undanrásum 60 m hlaupsins klukkan 10:05 á laugardag og Júlía Kristín í undanrásum 60 m grindahlaupsins klukkan 11:55 á sunnudag. Hér má nálgast yfirlit yfir beinar íþróttaútsendingar RÚV.