Kjara­viðræður í dvala og þarf að „hreinsa borðið“ áður en gerður er nýr samningur

„Snúin mál“ sem lúta að réttindum um starfslok flugmanna Icelandair „þarf að leiða í jörð“ áður en hægt er að halda áfram eiginlegum viðræðum um nýjan kjarasamning, að sögn formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna, en þær hafa legið í dvala um nokkurt skeið. Náist þar saman geti „hlutirnir gerst hratt“ en síðasti formlegi samningafundur fór fram undir lok síðasta árs.