Óskarsverðlaunahátíðin var haldin í Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt. Þar voru mörg skemmtileg augnablik og við tókum nokkur þeirra saman. Conan O'Brien var kynnir kvöldsins. Hann grínaðist með að vera síðasti mennski kynnirinn, sem ýjar að því að gervigreind muni taka við hlutverkinu. Síðan skaut hann á leikarann Timothée Chalamet fyrir ummæli hans um óperu- og ballettsamfélagið. Síðan koma stutt brot úr ræðum þessara sigurvegara: Jessie Buckley, sem var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Michael B. Jordan, sem var valinn besti leikari í aðalhlutverki. Amy Madigan, sem var valin besta leikkona í aukahlutverki. Kieran Culkin tók við verðlaununum fyrir Sean Penn sem var valinn besti leikari í aukahlutverki.